Jun8

Svavar Knutur @ Svavar Knútur á Randúlfssjóhúsi

Svavar Knútur á Randúlfssjóhúsi, Eskifjorður

Svavar Knútur söngvaskáld fagnar nú útgáfu á nýjustu plötu sinni, Ahoy! Side B, með tónleikum um landið vítt og breitt og auðvitað er mikilvægt að heimsækja vini og vellunnara og frændfólk á Eskifirði og syngja fyrir gesti á Randúlfs sjóhúsi, laugardagskvöldið 8. júní kl. 21.00. Svavar tók ástfóstri við þetta fallega hús fyrir nokkrum árum þegar hann fékk að njóta þeirra forréttinda að syngja þar tónleika fyrir algerlega himneskan hóp Austfirðinga.

Samhliða Ahoy! Side B kemur út Tvöfaldur vínill, Ahoy!, þar sem Side B rennur saman við systurplötu sína Ahoy! Side A, sem kom út 2018. Loksins sameinaðar!

Á tónleikunum mun Svavar Knútur syngja lög vítt og breitt af ferli sínum og segja sögur af ferðlögum, löndum og lýðum. Börn eru auðvitað velkomin í fylgd með foreldrum.

Aðgangseyrir er litlar kr. 3.500, en ókeypis er fyrir börn og unglinga undir 18 ára í fylgd með foreldrum eða afa/ömmu.

Sjáumst eldhress!
Miðasala hefst von bráðar á tix.is