Finnlandsvinir og aðdáendur Balkantónlistar á í Reykjavík (það gríðarstóra sniðmengi) geta glaðst heiftarlega föstudagskvöldið 6. nóvember næstkomandi, því þá mun finnska hljómsveitin Jaakko Laitinen & Väärä Raha leika sína fyrstu tónleika í Leyni á Akureyri. Jaakko Laitinen og vinir hans hafa síðan 2009 heillað áhorfendur vítt og breitt um Evrópu og eiga mikilli velgengni að fagna í heimalandinu og eins og allir vita kemur gott eitt frá Finnlandi. Það er vinur Jaakko, Svavar Knútur, sem dregur þetta fríða föruneyti á skerið og mun hann, fyrir þrábeiðni Jaakkos, taka nokkur lög til upphitunar. Kvöldið verður þó nær algerlega í höndum hinna dásamlegu Finna sem hafa marinerað sál sína í balkneskum spíra sem eimaður var í gömlum Trabant. Aðgangseyrir inn á tónleikana er litlar 4.000 krónur og er miðasala á Stubb.is