Nov7

Svavar Knutur @ Hjalli Kjós

Hjalli Kjós, Kjósahreppur

Finnlandsvinir og aðdáendur Balkantónlistar á í Reykjavík (það gríðarstóra sniðmengi) geta glaðst heiftarlega laugardagskvöldið 7. nóvember næstkomandi, því þá mun finnska hljómsveitin Jaakko Laitinen & Väärä Raha leika sína fyrstu tónleika í hlöðunni á Hjalla í Kjós.
Jaakko Laitinen og vinir hans hafa síðan 2009 heillað áhorfendur vítt og breitt um Evrópu og eiga mikilli velgengni að fagna í heimalandinu og eins og allir vita kemur gott eitt frá Finnlandi.
Það er vinur Jaakko, Svavar Knútur, sem dregur þetta fríða föruneyti á skerið og mun hann, fyrir þrábeiðni Jaakkos, taka nokkur lög til upphitunar.
Kvöldið verður þó nær algerlega í höndum hinna dásamlegu Finna sem hafa marinerað sál sína í balkneskum spíra sem eimaður var í gömlum Trabant.
Aðgangseyrir inn á tónleikana er litlar 4.000 krónur og er miðasala á Stubb.is