From the recording Ahoy! Side A
Lyrics
Sumarið kvatt, sem aldrei kom,
og haustið, svo traust, í hlaðið reið.
Settlega svæfði alla von
um sólríka daga og kvöldin heið.
Um sólríka daga og kvöldin heið.
Skýin nú hörfa stundarbil
og sólin loks í hæðni skín
Fuglar í nótt fá sjónarspil
á flugi þúsund trampólín.
Þeytast hjá þúsund trampólín.
Þungir vindar blása
þvert á alla ása.
Jólatré fjúka um götur hér og þar
Vonum feykt af stalli,
vanrækt grill á palli
minnir á ótal brostnar væntingar.
Kaldar lengjast nætur,
kaldir, blautir fætur.
Rignir nú strítt á okkar stirða geð.
Ljós í regni glansa,
lauf í vindi dansa.
Ekkert í boði nema dansa með
Haustvindar, haustvindar,
takið mig með, takið mig með!