0:00/???
  1. 03 - Refur
Your price

03 - Refur

Track download

Please choose a price: € EUR (€1.00 or more)

Please pay at least €1.00

Out of stock

Lyrics

REFUR
Nú færir rökkrið frið og ró
og feimin lúrir sól í sjó.
Í hálsakoti er hósíló.
Þar leggur lítið refaskinn
leið sína brátt í draumheiminn.

Nú kveður sólin kjarr og lyng,
og kyssir lítinn ljósvíking.
Heldur svo áfram næsta hring.
Þá eftir liggur anginn minn
og arkar senn í draumheiminn.

Þar syndum við
milli skýja, hlið við hlið.
Hver hjartsláttur er
himnadýrð, leikandi með þér.

Nú sólin sleikir morgunsár,
með sælubrosi knýr á brár
og stráin þerra daggartár.
Þá rumskar litli Refurinn
og rekur aftur draumheiminn.

Þar syndum við
milli skýja, hlið við hlið.
Hver hjartsláttur er
himnadýrð, leikandi með þér.