0:00/???
  1. 05 - Januar
Your price

05 - Januar

Track download

Please choose a price: € EUR (€1.00 or more)

Please pay at least €1.00

Out of stock

Lyrics

JANÚAR
Myrkrið gleypir allt.
En undir snjó með rammri kaldri ró
rumskar janúar,
Rymur hljótt og gyrðir sig í brók

Ýfða yglir brá,
Augu pírð í átt að kaldri sól.
„Þessi fjandi dugar skammt!
Hún liggur flöt en skal á loft!“

Ó janúar, sem enginn ann.
Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf?

Sólin rís með hægð,
en bak við tjöldin böðlast Janúar.
Eins og rótari,
eða ruslakall á mánudagsmorgni.

Ó janúar, sem enginn ann.
Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf?

Og eftir allt, sem hann gaf,
Janúar skríður aftur undir feld.
Þar til skyldan kallar enn á ný,
Eins og snæviþakinn Batman.

Ó janúar, sem enginn ann.
Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf?
Ég sé þig janúar, ég man þig janúar.